Aufsatz(elektronisch)8. Mai 2020

Efnisleiki, leikur

In: Ritið; Náttúruhvörf: Samband fólks og dýra, Band 20, Heft 1, S. 197-202

Verfügbarkeit an Ihrem Standort wird überprüft

Abstract

Þýðingin sem birtist í Ritinu að þessu sinni er eftir Timothy Morton, heimspeking og prófessor við Rice háskóla. Morton er einn áhrifamesti heimspekingur okkar tíma en hann vinnur á mörkum margvíslegra list- og fræðigreina. Nýverið hélt hann fyrirlestur í Safnahúsinu sem fjallaði um vistfræðilega listsköpun og listsköpun á tímum aukinnar vistfræðilegrar meðvitundar. Þess má einnig geta að hann hefur unnið töluvert með heimsþekktum listamönnum á borð við Ólaf Elíasson og Björk. Það er því sérstaklega ánægjulegt og viðeigandi að fá texta eftir hann birtan í Ritinu að þessu sinni. Textann samdi Morton í tengslum við verk Hrafnhildar Arnardóttur, Efnisleikann, sem var framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2019. Þýðandi er Oddný Eir Ævarsdóttir, heimspekingur og rithöfundur, og birtist hann hér með góðfúslegu leyfi höfundar.

Timothy Morton hefur einkum beint sjónum sínum að vistfræðilegum málefnum í verkum sínum. Í því samhengi hefur hann meðal annars lagt áherslu á það sem hann kallar myrka vistfræði (e. dark ecology) og varpað ljósi á mikilvægi þess að manneskjan finni nýjar leiðir til að hugsa um tengsl sín við umhverfið, lífhvolfið og alheiminn. Hann veltir upp spurningum og varpar ljósi á þau sameiginlegu vandamál sem steðja að lífríkinu og vistkerfi jarðar nú á tímum mannaldar (e. Anthroposcene). Í þessu samhengi hefur Morton fært rök fyrir því að allt í veröldinni sé samtengt þannig að nær ómögulegt sé að skipta heiminum upp í tvenndir á borð við mann og náttúru eða setja þær fram sem andstæður. Veruleikinn, að hans mati, er í raun einn risastór samanflæktur möskvi (e. mesh). Í texta Mortons, um verk Hrafnhildar, er að finna svipaða nálgun því þar leggur hann áherslu á þétta samofna þræði á milli manneskju, umhverfis og dýra. Þar er einnig að finna myrka vistfræðilega undirtóna sem vísa veginn inn í litríkt verk Hrafnhildar um efnisleikann.

Sprachen

Isländisch

Verlag

The National and University Library of Iceland

ISSN: 2298-8513

DOI

10.33112/ritid.20.1.10

Problem melden

Wenn Sie Probleme mit dem Zugriff auf einen gefundenen Titel haben, können Sie sich über dieses Formular gern an uns wenden. Schreiben Sie uns hierüber auch gern, wenn Ihnen Fehler in der Titelanzeige aufgefallen sind.