Aufsatz(elektronisch)April 2024

Hvernig undirbúa táknmálstúlkar sig fyrir túlkaverkefni?

In: Ritið, Band 24, Heft 1

Verfügbarkeit an Ihrem Standort wird überprüft

Abstract

Greinin sem hér birtist fjallar um táknmálstúlkun og áhrif undirbúnings á gæði táknmálstúlkunar. Sérstaklega er fjallað um hvernig táknmálstúlkar undirbúa sig fyrir verkefni sín og hvað þeir telja sig þurfa að undirbúa öðru fremur. Þátttakendur í rannsókninni voru starfandi táknmálstúlkar á Íslandi. Rannsóknin var unnin með blönduðum rannsóknaraðferðum, þar sem nýtt voru viðtöl, þátttökuathuganir og spurningakönnun, auk þess sem hluti þátttakenda tók þátt í sérhönnuðu túlkunarprófi. Prófið var framkvæmt til að ná fram tölfræðilegum upplýsingum um áhrif undirbúnings á táknmálstúlkun og fá túlkana sjálfa til að lýsa undirbúningi sínum og greina þætti sem mikilvægt er að undirbúa fyrir túlkun.

Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á að undirbúningur bæði eykur skilning túlkanna á umræðuefninu sem túlka á og auðveldar þeim framsetningu túlkunarinnar. Fjallað er almennt um undirbúning táknmálstúlka, en einnig er farið nánar í gegnum nokkur atriði sem þátttakendur segja að þurfi að hafa í huga við undirbúninginn, það er málfræðileg atriði, umræðuefni, sérstök málsnið, raddtúlkun og aðstæður. Undirbúningur gefur túlkunum tækifæri til að auka skilning sinn á því sem rætt verður um og takast á við vandamál sem upp geta komið í framsetningu túlkunarinnar. Hann varnar því einnig að þeir dragist aftur úr í túlkun sinni eða að eitthvað komi þeim á óvart. Þetta léttir á hugrænu álagi túlkanna þegar í túlkunaraðstæðurnar er komið, sem leiðir til betri túlkunar.

Sprachen

Isländisch

Verlag

The National and University Library of Iceland

ISSN: 2298-8513

DOI

10.33112/ritid.24.1.8

Problem melden

Wenn Sie Probleme mit dem Zugriff auf einen gefundenen Titel haben, können Sie sich über dieses Formular gern an uns wenden. Schreiben Sie uns hierüber auch gern, wenn Ihnen Fehler in der Titelanzeige aufgefallen sind.