Suchergebnisse
Filter
2 Ergebnisse
Sortierung:
Inntak konungdóms í konungsríkinu Íslandi
In: Icelandic Review of Politics and Administration: IRPA = Stjórnmál og stjórnsýsla, Band 19, Heft 1, S. 45-70
ISSN: 1670-679X
Í greininni er gerð grein fyrir inntaki konungdóms í konungsríkinu Íslandi en allt fram til þess tíma er Ísland verður frjálst og fullvalda ríki eru konungbornir þjóðhöfðingjar áhrifamiklir gerendur við stjórn ríkja Norðurálfu, sér í lagi hvað varðar utanríkismál. Í greininni er rakið hvernig meðferð utanríkismála var kjarni konungdómsins í huga Kristjáns X, fyrsta og eina konungs konungsríkisins Íslands, en í hans huga kom ekki annað til álita en aðeins ein utanríkisþjónusta starfaði í hans umboði. Fyrst kastaðist verulega í kekki með konungi og íslenskum ráðamönnum þegar þeir hinir síðarnefndu léðu máls á uppsögn sambandslagasamningsins og þar með stofnun eigin utanríkisþjónustu. Í greininni eru hugtökunum persónusambandi og málefnasambandi gerð skil, leidd að því rök að milli Íslands og Danmerkur hafi verið persónusamband og um tvö aðskilin konungsembætti hafi verið að ræða.